berglindao
November 9th 1984  (Age 25)
Female
Iceland
   

<< December 2009 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04 05
06 07 08 09 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed




Tuesday, March 28, 2006
arg! me be monstah!!

Ég ætla á eplakúrin MIKLA!! Ég mun standa hörð í þrjádaga, með fullanpoka af FujiEplum í vinstri hönd meðan ég steyti hnefanum upp til himins öskrandi:" þú mun ekki sigra!!!!!!! ÉG mun troða þér í jörðina og segja... who's your DADDY!!!"Ennhvað mörg epli mun ég þurfa.. eitt í hvert mál? eða kannski 5? Hvað mun það kosta? ætti ég að fara í 10/11 þar sem ég fæ tvö fujiepli á 99kr, eða skella mér í bónus og vona að ég lifi eplin af og fái ekki eplaveikina?Hvað sem því líður þá ætla ég að taka út pening af bókinni minni og fjárfesta í eplum...fullt fullt af eplum. Fyrir 1000kr fæ ég 10pakka eða 20FUji epli í 10/11...ef nóg er eftir, og svo borðaég ekkert nema epli næstu 3 daga.... svo er spurning hve lengi ég endist.... amma og afi endust ekki nema 2daga, hildur 1 1/2. Hvað með mig? Manneskjuna sem hefur enga sjálfstjórn og í staðinn fyrir að hlusta á tippið eins og karlmenn þá hlusta ÉG á magann. Hann er minn herra, hann hefur einræðisvaldið og stjórnar heiminum með græðgi, frekju og sjálfselsku! Ýtir á hnapp og ég urra á fólk sem kemur nálægt matnum mínum, og notar peninganna mína til að fá meira ...og meira og meira! Fíkninnn hættir aldrei. Og fólk hélt að sígarettur eyðilögðu líf?...þau þekkja ekki helvíti!Ædol.... það yndislega idol sem fangar hluta af easymindedd part þjóðarinnar þegar lítil peð reyna að komast áfram í hinni íslensku söngkeppniskjaftæði og fá í staðinn 15frægð og dofna smám saman úr sviðsljósinu fyrir utan einstaka byrjaði/hætti sambandsfréttir í séð og heyrt sem landinn þýtur út í búð til að kaupa. Sjálf hef ég ekki getað komið mér inn í þetta að neinumarki.. horfði á fyrstu þáttaröðina og þá var þessi kalli bjarni dúddinn.. sá hann þegar hann prufaði fyrst... hann hafði þetta útlit sem stóð út einhvernveginn..ekki þetta nákvæmlegaeinsogalliraðrirútlitsemmaðurgleymirstrax... og svo gat hann sungið líka. og það EINA sem mér fannst töff við þá þáttarröð var þegar hann var komin eitthvað áfram og þau voru í einhverri fatabúð að velja sér föt, og starfsmaður hélt upp jakka fyrir einhvern annan keppnisdúdda og sagði að hver sá sem væri í þessum jakka myndi vinna ædol...gaurinn hló bara og hélt að næsta fatarekka.... og viti menn...kalli bjarni VANN í þessum SAMA rauðhvítahideous jakka. XD Veit ekki hver annar tók eftir þessu...enn þetta er það EINA sem mér hefur fundist markvert við að muna úr Idæl...og já...er það bara ég eða eru eiginlega ALLLIR keppendur sem hafa komist í 10manna úrslitin síðustu tvö ár með einhvernveginn með svona venjulegt einsogalliraðrir útlit semég bara get aldreimunað eftir.... nema ein. Það er bara staðreynd! Mér finnst að fólk þurfi að hafa eitthvað sérstakt við útlit sitt, og ekki vera svona eins og allir fokkings aðrir! Í dag eru allir að eltast við þessa seríótýpu útlit þannig að allir enda með að líta út sem klón af hvoröðrum...bara....ick!Makes me feel special að ég fylgi ekki tískunni :P

Posted at 12:56 pm by berglindao
Comments (3)  

Monday, March 27, 2006
helvítis HUNDARNIR ykkar!


Hundar...við erum fjandans HUNDAR!!
Við hugsum um ekkert annað enn kynlíf, mat, og að sá sterkasti lifi af!
Þetta kom upp í hausinn á mér er ég stóð þarna í ísakuldanum á litla afkimanum Geirsnef, sem er útataður af hundaskít og svæðismerkingarþvagi.
Var uppdúðuð, ómáluð og þurfti að komast í sturtu. Þarna dreift um nefið var fólk að safnast saman, bland af hinum ýmsu stigum þjóðfélagsins með hundana sína af öllum stærðum og gerðum. Þessi snobbuðu með hreinræktuðu hundanna sem lifa samkvæmt ströngum siðgæðisreglun, og þekkja upp á hár hvernig þeir eiga að hlaupa þegar þeir sækja rándýra boltann sinn sem er með gætavottun frá þekktum dýraklæknum lengst út í heimi sem enginn þekkir.
Konurnar í kraftgöllunum sem hanga þarna tímunum saman með hundana sína, litlu börnin sín sem þau gefa allt sitt litla líf í.
Svo má ekki gleyma fólkinu sem hleypir hundinum sínum út í sína víst nauðsinlegu hreyfingu og félagsmingle meðan þau sitja inn í bíl, hlustandi á sína tónlist, smókandi með pælingar varðandi vinnuna og hvað þau ættu að hafa í matinn þegar þau kæmi heim. Fólkið sem læsir hundinn inn í búri heima meirihluta dagsins meðan þau vinna, hreyfa hann rétt þegar þau koma heim og svo aftur inní búr um nóttina.
Nýja hundafólkið, fólkið sem sér hvolpinn, squueeelar svo að hvolpurinn grettir sig og hugsar..."út í hvað er ég lentur?!?!?" Sem er þvílíkt duglegt í byrjun meðan hann er sætur og krúttlegur, enn svo dafnar áhuginn er hann stækkar og verður fullvaxta hundur með allar sínar þarfar og anti-krútt-útlit.


Það veldur mér sífelldum áhyggjum hvert skipti sem ég fer út á nef með yndislega belgíska shefferinn minn hana Ísabellu Rosalini. Hún er búin að fara á sitt fyrsta lóðerí sem er túr, sem endar með þriggja fokkin vikna tímabili þar sem allir hundar í rosaradíus verða óðir við það eitt að vita af tík í grendinni, þar sem þeirra litla dingdong kallar ákaft til þeirra, og stjórnar þeim líkt og dáleiður myndi gera við hóp af auðveldum táningum. Svo nú, í hvert sinn sem ég fer með kellunna út úr yndislegu lokaða garðinum okkar þarf ég hafa augun opin hvert sekúndubrot til að forðast það að einhver fífls graður hundur fari ekki að nauðga henni þegar hún vill bara leika sér og hafa saklaust fjör. Svo er það alltaf ég sem þarf að hrinda helvítis fíflinu í burtu þar sem eigandinn er alltaf, ég segi ALLTAF annaðhvort að spjalla og horfandi í hina áttina eða þá húkandi inn í bíl því hundurinn er greinilega ekki það mikilvægur að hann geti ekki staðið úti og fylgst með honum í measly 20mín. Gerir mig hreint brjálaða >.<


Enn já
enough ranting

Kampavín anyone?



ps... ég veit að allar myndir sem ég geri núorðið eru ljóshærðrar, enn ég bara ræð ekki við mig!!! Næst verður það rauðka or something.. I promise! *shifty eyes*

Posted at 11:47 am by berglindao
Make a comment  

Tuesday, March 21, 2006
speeeeaaaaaaaak

Hérna sit ég hálf hugsi með Dr.Phil í bakgrunninum meðan ég narta í furuhnetur. Milljón hugsanir þjóta gegnum höfuðið á mér, strákamál, útlitspælingar, fjölskyldan, peningar, og óteljandi meir. Allir pota í mig á sama tíma heimtandi athygli og lausn enn ég bara sit hérna litla vonlausa ég og sé hvergi endan á neinu. Í sjónavarpinu sigrar litla smáfólkið bandaríkjamenn á sínum vandræðum, hvort sem það eru í hjónabandinu, aukakólógin, mismunandi hugsanir eða hræðsla við að spila fyrir framan aðra. Átta mig ekki á þessum þætti, enn læt hann spila áfram þegar ekkert annað er til að fylla hljóðláta bakgrunnin í kringum mig. Sköllóttur maður með skegg að sálgreina vandamál sem hafa verið syndandi fyrir framan bólugrafin nef þessara vesælu manneskja. Það er merkilegt að enginn hefur áhuga að hlusta á vandamál þeirra í kringum sig, velja frekar sjónvarpið eða sínar eigin sjálfelsku lifnaðarhætti, enn þegar það kemur að fólk deili því í sjónvarpið verður þetta að frábærum sjónvarspþætti þar sem maður getur awwað og nöldrað yfir þessum vandræðum hjá þeim þar sem innan seilingar er ljúf fjarstýring með rauðum takka sem gerir okkur kleift að slökkva á jarminu ef við fáum æluna upp í kok.

Aðeins 9 dagar þar til yndislega bankabókin mín fyllist af yndislegum bleðlum sem ég get spanderað í galadinner handa eldgyðjunum, lagt fyrir interrail, og einnig hafið leit mína að einhverju skemmtilegum tölvuleik sem fangar mig inn í ýmindaðan heim fjarri öllum raunverulegum vandamálum. Er ekki alveg með það á hreinu hví ég þrái svo að verða "nörd". Kannski heillar það mig hve gagntekin hægt er að vera af tölvum og tölvuleikjum, hóparnir sem myndast, og svo auðvitað húmorinn og fólkið. Það gæti lika verið að ég sé búin að átta mig á að það eru engir aðrar "hópar" sem ég myndi passa í. Vinsæla fallega fólkið.... nei.... íþróttafríkin...nei.. gothin....nei... gáfaða fólkið.... nei.  Hef alltaf verið svona "loner" og þrá mín í að "eignast" hóp þar sem ég á heima í hefur aldrei verið sterkari, en á sama tíma þá dreg ég mig tilbaka, held mig út af fyrir mig, er þögul innan um fólk, og sýni fólki ekki mikin áhuga.
Ossalega er ég eitthvað erfið >.<

held ég haldi áfram með nýjustu myndina mína sem er óþægilega sæt, og svo virðist sem ég ég hætti ekki þeim stíl fyrr enn ég er búin að perfecta hann, þannig að þiðverðið bara að þola mig þangað til og halda ælunni niðri!

Tala ég of mikla english?

Stay tuned for the next blog!
Where Berglind talks about the musical movie RENT and her goosebumps!

Posted at 09:47 am by berglindao
Comment (1)  

Friday, March 17, 2006
^w^

http://www.sheezyart.com/view/688776/



Posted at 03:56 am by berglindao
Make a comment  

Monday, March 13, 2006
...bara...pirr.

Veik...aftur. Þetta týpíska, höfuðverkur, vöðvaverkur, sljóleiki, of kallt, of heitt, hálsbólga, og kvef, sem mér finnst að ég sé nýbúin að fá... bara man það ekki.
Emo... svona emotional depressed persóna sem telur lífið vera ömurlegt og allt og allir vera á móti sér etc etc end of story. Því í dag þá ertu aumingji og lúser ef þú ert með vott af niðurdregni eða leiða. Ef þú ert ekki annaðhvort sálarlega lokaður og kaldur sem steinn, eða eins og allt brosir við þér að þú brosir þegar fólk kastar skít beint upp í kjaftinn á þér... ef þú ert ekki annaðhvort þá ertu emo. Þá ertu neðst í virðingarstiganum og fólk tekur svaka detúr til að forðast í að lenda í þér og ruglinu þínu. Þú mátt ekki draga þau niður úr fantasí veröldinni þeirra sem þau hafa búið til, til að forðast að face´a veruleikann.
Bara böggar mig geðveikt hvað fólk er mikið að dæma fólk út frá svona smáhlut. Ég hef verið kölluð emo og drama-llama í nokkurn tíma, og svo virðist sem ég held að lífið sé bókstaflega ömurlegt, ég sé ljótasta manneskja sem hefur fæðst, og ég hugsa um að enda þetta líf þar sem enginn mun sakna mín, ásamt því að fá drama-queen stæla á fimmínútna fresti.... allaveganna er þetta það sem ég hugsa þegar þessi orð eru notuð "gegn" mér. Persónulega finnst mér þau heimsk og fáranleg. Vissulega hef ég átt mín vandamál, eins og þunglyndi og fortíð sem ég næ ekki að gleyma eins og sumir eiga auðvelt með, (og ég vil ná að díla við mína fortíð, ekki bara gleyma henni og láta sem ekkert gerðist) enn í alvörunni! Það er eins og nútíminn ætlist til þess að maður sé mr.perfect! Með rétta líkamann, með réttu fötin, með rétta andlitið, rétta attitudeið, og auðvitað með rétta skapið. Vissulega getur þetta virkað um tíma, enn á endanum verðuru alltaf bitin í rassinn og emotional hlutinn étur þig innan frá uns þú ert ekkert meir enn gangandi beingrind með skinpjötlur utan á þér.

Samt... þá er hluti af mér sem langar að verða svona "falleg" eins og ýmind dagsins í dag er. Sá hluti af mér fær mig til þess að drekka vatnsglass með teskeið af jurtum hvern einasta morgun til að hreinsa ristilinn, fær mig til að drekka bara vatn með undantekningum af sprite zero sem ég sannfæri mig er skárra enn hitt gosið. Fær mig til að taka 20-30min puð á stigadæminu mínu til að koma brennslunni af stað þar sem ég hef ekki hreyft mig vitund í 22ár. Fær mig til að vakna kl 6 2svar i viku til að fara í sund með dagmar þar sem við megum ekki synda minna enn við gerðum síðast, fær mig til að fara í klst+ göngutúra með hundinn þrátt fyrir að ég gleymi eiginlega alltaf poka og þarf að horfa VEL í kringum mig allan tíma í leit að bráðabirgðarlausn og sífelt hugsandi :" ekki kúka..ekki kúka fyrr enn við komum heim ísabella!!". jafnvel er ég byrjuð að skoða kalóríufjöldan utan á einstaka matarpakka sem ég er að kaupa eða fara að éta, búina ð reikna út að ég má bara borða 1700kaloríur á dag miðað við enga hreyfingu og ég vilji grennast um 1kg vikulega. Svo þegar ég stend fyrir framan spegilinn og dæmi hvað mikið ég á eftir, þá langar mér mest að ná í hníf og skera þessa fitu sem heldur mér aftur í lífi hinna fullkomnu..þar sem hinir fullkomnu ná í kærasta, í vini og góð störf, þar sem hinir feitu eins og ég enda einir, endalaus dómhörð augngot frá hinum er maður stígur út úr húsi, og endar í starfi þar sem enginn von er um að maður nái árangri.
Stundum hugsa ég jafnvel um hvort að það sé einhver önnur veröld handan spegilsins,, því mér finnst eins og hann ljúgi að mér...sýnir mér aðra sýn af mér heldur enn myndir gera. Í speglinum er ég bara þybbin, og myndarleg stelpa sem virðist eiga skemmtilega persónuleika, enn á myndum þá birtist þessi hvalur með riisastórt mitti, fitugt hár, og hrikalega bollulegt andlit sem ég þarf alltaf að hugsa í smátíma... er þetta virkilega ég?! ..kannski var einhver önnur manneskja með ljóst hár í partýinu...

jæja..
þar sem mín er sjúklingur atm, á ekki að taka mig alvarlega heldur bara brosa kímnislega og hrista hausinn að kjánaskapnum í mér :-)
ég ætla að halda áfram með myndirnar fyrir vinnumöppuna hennar dagmar.

tjúss

Posted at 08:08 am by berglindao
Comment (1)  

Thursday, March 09, 2006
Bloddy Trail

Myndin hennar Jóhönnu er tilbúin..eftir..hva...segjum bara hellings tíma ;)
Enn held að hún sé biðinnar virði. Er virkilega stolt af henni og hún yrði massa kúl á hvítum bol :D enn það er markmiðið. Og svo ef Jóhanna elskan vill losna við blóðið má hún það.. þó það myndi hálf eyðileggja myndina. EInnig er möguleiki að setja nafn við myndina, hvort það yrði nafnið hennar jóhönnu, eða nafn myndarinnar, enn það far allt eftir fröken potter eins og hún kallar sig.

Njóttu vel elskan, og nú þurfum við bara að mæla okkur mót og fara niður í merkt og láta setja gripin á bol.. eftir að ég er búin að prenta hana út og skoða litina that is.

Sökka í bg, enn er einhver með alternite hugmyndir? ætlaði að gera svona hlið þar sem hún labbar úr myrkinu ..enn það klúðraðist..svo ég prufaði bara að setja svona skugga og blóðuð fótspor..og það bara heppnaðist nógu vel held ég.


Posted at 05:16 pm by berglindao
Comment (1)  

Wednesday, March 08, 2006
Blip animation..gone wrong :(

Blip in the rain
*sniff sniff* var að vinna í þessu í gær í flash...svo seivaði ég það og skrapp aðeins. Enn þegar ég kem tilbaka og opna flash-fælinn þá er bara ekkert í honum :( og ég get ekki unnið meir í þessu. Ætlaði að setja inn rigningu, og svo massívan vind þar sem þessi flýgur fyrst út um allt og svo bilar regnhlífinn og hann plömmerar til jarðar... but nooooooo! *pirr pirr*ekki sanngjarnt *urrr*

Posted at 04:56 am by berglindao
Make a comment  

The re-makes

Búin að vera busy í skólann enn samt sem áður hefur ég búið mér til tíma til að críeita þessar elskur..eða ætti ég að endurgera. Var nefnilega að verða brjáluð og pirruð yfir aðferðinni sem ég litaði myndirnar mínar og bara gat ekki einhvernveginn gert betur... þar til ég prufaði þessa aðferð. Hún hefur þeim þennan cartoony fíling, enn einnig cuteness og smoothness. Svartarlínur pirra mig.

  Í öðrum fréttum er að ég og Dagmar erum að fara plana hvaða borgir við ætlum að skoða, hvaða lestir við tökum, og hve lengi við verðum í hverri borg. Og eftir að sá massi er allur komin fram getum við pantað herbergi því við fengum víst að vita að allt er að fyllast fyrir júlí ágúst!!! CRAPCRAPCRAPCRAP!! SKruppum nefnilega niður á farfuglaheimili að fá okkur svona HIhostel skírteini sem gefur okkur afslátt á hostelum þarna úti, og fengum að vita að við yrðum bara að panta núna ef við vildum fá pláss! Svo ég reikna með að gistingakostnaðurinn eigi eftir að hækka aðeins ef bara dýrari plássin eru eftir -_- *vesen

*Er búin að vera undarlegri enn venjulega undanfarið finnst mér. Rólegri, meiri hugsi, og bara all in all furðuleg. So don't be afraid.. ekki leggja mig inn á klepp.. I'll be fine in no time... I hope *gulp*

 In other news.. ég er byrjuð að hreyfa mig! Allir klappa! Dagmar and myself erum byrjaðar að vera svo duglegar að fara kl 6 á fimmtudagsmorgnum og eftirskóla á þriðjudögum í sund!. Þar erum við komnar með þessa nettu reglu að við syndum aldrei minna enn við gerðum síðast, og annaðhvort jafnmikið eða meir. Svo er bara að halda sig við þessa reglu og standa sig. Og auðvitað kjöftum við svo í pottinum eftirá, æðislegt að fá svona smá stelpuspjall :DFyrir utan það reyni ég að fara út að labba með Ísabellu eftir skóla ,ef veður leyfir, 40min+.  Hún dýrkar þetta gjörsamlega þar sem ég fer aldrei sömu leið og hún þefar allt eins og hún eigi lífið að leysa! Þannig ef hún týnist þá villist hún kannski ekki eins mikið :POg ef það er ekki nóg þá er ég að fara kaupa mér svona "stigadæmi" eins og Hildur fjárfesti í fyrir löngu(sem gaf upp öndina..Rest in peace) og ég hef ákveðið að fjárfesta í. Eitthvað svo þægilegt að geta verið bara heima í æfingargallanum FÁRANLega(sem eru STUTTAR fyrv náttbuxur og stuttermabolur úr hvassó) að ég myndiekki láta sjá mig í því neinstaðar. Svo er ég bara að puða í minn hálftíma meðan ég horfi á eitthvað skemmtilegt í sjónvarpinu. Verulega næs :)Svo ..já. Ef þið hafið ekki fattaðþað by now þá er ég staðráðin í að komast í betra form fyrir sumarið þar sem annars spring ég á öðrum degi við að bera þennan bakpoka og tek fyrsta flug heim.. which is of course not good! Óskið mér góðsgengis því ég þoli ekki þetta þunglyndi yfir hve feit ég er orðin lengur! Þetta skal breytast og ég skal verða sexy hot nerd if thats the LAST THING I DO!!!!

Ætti að vera að teikna Sigga og Jenný núna.. að láta þau tala og hreyfa sig í flash... eeeen.. ég bara nenni því ekki. Svo ég held ég finni aðra mynd til að endurgera. Cheers darlings.


Posted at 02:29 am by berglindao
Make a comment  

Monday, March 06, 2006
Nothing new to report capn'!

Watching: Secret Window (w.Johnny Depp)
listening to : untitled with Simple Plan
wearing: pink satin pj pants, blue adidas hoddie.

Mér hefur verði skikkað að blogga. Skikkað að skrifa einhverja sniðuga færslu sem fjallar um mitt áhugaverða líf (*cough cough*) og brjáluðu hugsanir sem annaðhvort kemur upp brosi hjá náunganum eða til að teygja sig í simann og ýta á speedial takkan fyrir klepp.
Maður mætir í skólann 5 daga vikunnar, frá 8-4/5 á daginn. Þar er ég í vefvinnsluger, að hanna interactív kennsluvef um sólkerfið, að vinna við hreyfimyndagerð og animatíón, og þrívídd. Þess á milli sef ég yfirleitt á næturna, borða reglulega, er að byrja að hreyfa mig eins og sund kl 6 á morgnanna þegar ég og dagmar komumst, ásamt því að teikna the ocasional mynd og vafra tilgangsleysislega á www í eilífa hringi uns ég gefst upp, slekk á tölvunni og legg mig.
Ég vinn aðra hverja helgi báða daga 10klst vaktir, ásamt því að taka 5klst vakt föstudagskvöld.
Það eina sem veldur öldum í lífi mínu þessa daganna, sem færir bros og spennu gegnum æðarnar er td. undirbúningur fyrir Interrail sem ég og Dagmar förum í sumar. Einnig er það hræðsluköstin sem eru í lágmarki núna þegar ég þarf að mana mig til þess að stíga út úr íbúðinni, til þess að kveikja á bílnum og fara á fund við þetta fólk sem kallast bekkjarfélagar mínir. Fólk sem ég þekki ekkert og er dauðhrædd um álit þess og hugsanir. Fáranlegt eiginlega, eins og ég búist við því að þau fari að benda og hlæja að mér, kasta steinum að þessum óvita sem ætti ekki að líta dagsins ljós, eða eitthvað álíka fáranlegt. Þetta er að batna samt, ég er byrjuð að mæta ekki satt?!
Er búin að blogga um hið yndislega líf ríku og frægu Berglindar. Mínir æstu aðdáendur verða bara að bíða


Ort milli 6-7 sunnudagskvöldið 5.mars 2006

Þessistaður mér í hjarta

Ég horfi til himins
á stjörnu þína skæra.
Og minnist alls þess
sem ég hafði enn af þér að læra.
Þú býrð mér nú í hjarta
að eilífu og nú
uns í himnagarð ég stíg
og á móti mér birtist þú.

Til minngar Kristínar Jónsdóttur
 F 1.9.1922 L 16.11.2005




Quote: I killed a mirror.... and my shower door.
Hvaða hver og afhverju?

Posted at 02:01 pm by berglindao
Make a comment  

Monday, February 27, 2006
So yeah..



er í skólanum, að vinna og sofaogéta.
Er enn lifandi..svona hér um bil. Ekkert búið að gerast. Er annars bara að teikna þegar ég get.
Cilitra out.




Posted at 04:41 am by berglindao
Comment (1)  

Next Page